Saturday, December 03, 2005

Lífið er fallegt

Þetta er með því óhugnalegasta sem ég hef séð.


Fokk.



Plata augnabliksins:

Nine Inch Nails - The Downward Spiral

Thursday, December 01, 2005

That´s the truth, Ruth!

Ef þið hélduð að Jerry Falwell væri slæmur þá mæli ég með The Truth For Youth. Alveg rosaleg síða þar á ferðinni. Svo sem skiljanlegt að þeir prediki á móti ofbeldi og eiturlyfjum en hlutir eins og þróunarkenningin, öruggt kynlíf(ss öruggt kynlíf fyrir hjónaband) og rokktónlist fá einnig að kenna á því! Alveg hreint yndislegt.

"Guns don´t kill, I do"

Jæja krakkar. Núna er bara ein sýning eftir af Blóðberg. Þið lásuð rétt. AÐEINS EIN. SÍÐASTA sýningin af Blóðberg er næsta föstudag kl. 20 og því er um að gera fyrir þá sem eru ekki búnir að sjá þetta magnaða leikrit að skella sér á það.

Ég var áðan að lesa skemmtileg kvót á kvótsíðu sem Stebbi vinur minn bjó til og þar er m.a að finna eftirfarandi kvót sem Jerry Nokkur Falwell sagði. Falwell þessi er baptistaprestur og vel þekktur og virtur predikari í Bandaríkjunum(þið munið kannski eftir honum úr The People vs Larry Flynt):

"We're fighting against humanism, we're fighting against liberalism...we are fighting against all the systems of Satan that are destroying our nation today...our battle is with Satan himself."

"AIDS is the wrath of a just God against homosexuals. To oppose it would be like an Israelite jumping in the Red Sea to save one of Pharoah's chariotters."

"AIDS is not just God's punishment for homosexuals; it is God's punishment for the society that tolerates homosexuals."

"If you're not a born-again Christian, you're a failure as a human being."

Ég veit ekki með ykkur en af þessum kvótum af dæma þá er Jerry Falwell að mínu mati einhver geðsjúkasti maður sem ég veit um. Og það versta er að mörg þúsundir manna líta upp til þessa manns og hlusta á hann. Ég bara spyr, hvernig komast svona menn í valdastöður ? Af hverju er ekki löngu búið að setja þennan mann á hæli ?

En endilega kíkið á þessa kvótsíðu, alveg kostulegar setningar þarna.

Plötur:

Pavement - Brighten The Corners
Wilco - Yankee Hotel Foxtro(90), Being There
Sigur Rós - Takk...
Dr. Spock - Dr. Phil
The Rakes - Capture/Release
Botnleðja - Magnyl
The Bloc Party - Silent Alarm Remixed
Clor - Clor
The Hidden Cameras - Missisauga Goddam
The White Stripes - The White Stripes(70), White Blood Cells(81), Elephant(78), Get Behind Me Satan(74)
Orange Juice - You Can´t Hide Your Love Forever
Kate Bush - Lionheart, Never For Ever